miðvikudagur, júní 09, 2010

Þunn

Var með höfuðverk í gær og tók sterka verkjatöflu. Svo kom fólk í heimsókn og vinkona mín kom með kampavín til að skála fyrir góðum fréttum. Þá var ég búin að gleyma höfuðverknum og skálaði með glöðu geði. Eftir heilt kampavínsglas var ég orðin aðal pæjan í partíinu. Stóð á haus og steypti mér í kollhnísa og gerði armbeygjur og ég veit ekki hvað.

Vaknaði í morgun og mundi eftir verkjatöflunni. Í dag er ég þunn. Það er á mörkunum að ég komist fram úr rúminu.