fimmtudagur, júní 17, 2010

Hátíð í bæ

Við byrjuðum daginn með því að veifa fánanum og syngja Öxar við ána og töluðum um að lýðveldið Ísland ætti afmæli. 66 ára er lýðveldið orðið... höldum við. Fáninn fékk að fara með á leikskólann í morgun og á heimleiðinni verður keypt pítsa.

Eftirrétturinn er svo sérinnfluttur frá Íslandi: rammíslenskt Prins Póló frá Póllandi með mjólk.