miðvikudagur, maí 26, 2010

Úti að borða

Við F héldum daginn hátíðlegan í gær. Fórum út að borða á veitingastað með útsýni yfir Gamla Stan. Maturinn var góður og starfsfólkið duglegt. Þeim fannst ég ekkert skrítin að vilja fá tvo forrétti og eftirrétt og sleppa aðalréttinum. Kvöldið gat ekki orðið betra.

Það eina sem skyggði á var að F gat ekki hætt að tala um hvað útsýnið væri leiðinlegt og hvað borgin væri skítug og grá. Mér fannst hann vera nöldurseggur. Í lok kvöldsins stóð F upp og skrapp á snyrtinguna. Þegar hann kom til baka stoppaði hann á bakvið stólinn minn, lítur út um gluggann og segir svo: ,,Hulda, prófaðu að setjast í stólinn minn." Ég geri það, lít út og við blasir Slussen í öllu sínu veldi. Á meðan ég hafði setið og horft út yfir fallegasta hluta borgarinnar hafði F. setið og fylgst með skítugustu gatnamótunum/lestarstöðinni í Stokkhólmi.