Símtal frá ömmu farmor
Amma farmor hringdi í gær. Amma farmor og allar föðursysturnar og föðurbræðurnir voru úti að saga niður eldivið og Íris sniglaðist í kringum þau. Amma farmor gerir sér grein fyrir því að óvenju lítið hefur farið fyrir Írisi síðustu mínúturnar og fer að athuga málið. Þá hafði Íris fundið gamlan varalit og málað bílinn hennar ömmu að innan...
